Menu
Kjúklingapasta með Óðals Tindi

Kjúklingapasta með Óðals Tindi

Osturinn Óðals Tindur líkist parmesan osti og er ótrúlega góður á kjúkling og rifinn niður yfir pasta. Ostahjúpaðir kjúklingabitar í kremkenndri sósu sem er full af mýktri papriku, sem gerir hana sæta og mjúka á móti söltum ostinum. Við mælum með að þið prófið ef þið hafið ekki gert það nú þegar.

Innihald

1 skammtar

Kjúklingur:

kjúklingabringur, skornar í strimla
egg, hrærð
hveiti
salt og pipar
Óðals Tindur, rifinn 5-7, magn eftir eftir því hvað er vilji til að hjúpa kjúklinginn vel

Sósa og pasta:

paprikur, rauðar og gular, skornar smátt
blaðlaukur eða rauðlaukur, skorinn smátt
ólífuolía
rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
rjómi
pastasoð
smakkið til með salti og pipar, jafnvel smá chilipipardufti
pastaskrúfur eða tagliatelle, 300-400 g

Skref1

  • Hitið ofn í 200 gráður.
  • Veltið kjúklingi upp úr hveiti, eggi og osti. Raðið á ofnplötu eða í form.
  • Eldið þar til kjúklingurinn er klár alveg í gegn, fer algjörlega eftir stærð bitanna.

Skref2

  • Rjómalöguð og kremkennd sósa.
  • Mýkið paprikur og lauk í góðri ólífuolíu á pönnu, í um 10-15 mínútur.
  • Setjið rjómaost saman við og látið bráðna saman. Hellið rjóma á pönnuna og látið suðu koma upp. Kryddið og smakkið til.

Skref3

  • Sjóðið pasta, þegar það er að verða klárt, takið þá smá pastasoð frá og bætið í nokkrum skömmtum saman við sósuna, eins og þurfa þykir til að ná góðri áferð á hana.
  • Sósuna má hræra saman við pastað eða setja hana á pastað fyrir hvern og einn.
  • Þá fer kjúklingurinn yfir herlegheitin.
  • Berið fram og njótið.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir