Menu
Kjúklingapasta í ostasósu

Kjúklingapasta í ostasósu

Þetta kjúklingapasta með ostasósu er hinn fullkomni fjölskylduréttur sem getur ekki klikkað. Ostasósan er einstaklega ljúffeng enda inniheldur hún rjómaost með grillaðri papriku og chili.

Gott að bera réttinn fram með parmesan osti og hvítlauksbrauði. Verði ykkur að góðu!

Innihald

4 skammtar
penne pasta
olía af sólþurrkuðu tómötunum
sólþurrkaðir tómatar (sigtið olíuna frá hér)
hvítlaukur
kjúklingabringur (3-4)
meðalstór haus af brokkolí
salt
paprika krydd
chili pipar
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
rifinn mozzarella frá Gott í matinn
Rjómaostur með grillaðri papriku og chilli
pastasoð (vatnið af pastanu)

Skref1

  • Byrjið á því að sjóða pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  • Gott er að setja 1 tsk. af salti saman við vatnið.

Skref2

  • Setjið olíu af sólþurrkuðu tómötunum á pönnu og steikið hvítlauk og sólþurrkaða tómata í rúmlega 1-2 mínútur. Passið þó að hvítlaukurinn brenni ekki við.

Skref3

  • Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og steikið saman við.
  • Kryddið með salti og paprikukryddi.

Skref4

  • Saxið niður brokkolí og þegar kjúklingurinn er nánast tilbúinn bæti þið því saman við á pönnuna og steikið þar til kjúklingurinn er orðinn full eldaður.

Skref5

  • Setjið matreiðslurjóma saman við ásamt mozzarellaosti og rjómaosti.
  • Hrærið þar til osturinn hefur náð að bráðna alveg.

Skref6

  • Þegar pastað er soðið þá þarf að passa að setja soð af pastanu til hliðar til þess að nota í pastasósuna. Gott er að láta kalt vatn renna á pastað svo það hætti að eldast á meðan þið klárið að gera sósuna.
  • Hellið pastasoðinu saman við sósuna. Ef ykkur finnst hún ennþá of þykk geti þið alltaf bætt meira af soði saman við.
  • Kryddið með chili pipar og meira salti ef þörf er á.
  • Gott er að smakka sósuna til og bæta við hana kryddi ef þess er þörf.
Skref 6

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir