Menu
Kjúklingabringur með ferskum mozzarella

Kjúklingabringur með ferskum mozzarella

Frábær kjúklingaréttur fyrir alla fjölskylduna.

Innihald

4 skammtar
kjúklingabringur
þurrkað óreganó
þurrkuð basilíka
ólífuolía
pressuð hvítlauksrif
balsamik edik
púðursykur
kirsuberjatómtar, skornir í tvennt
stór mozzarellakúla, skorin í sneiðar (1-2 stk.)
fersk basilíka
salt og pipar

Aðferð:

  • Hitið ofninn í 210°C.
  • Kryddið kjúklingabringurnar með óregangó, basilíku, salti og pipar.
  • Hitið olíu á pönnu (sem má fara í ofn, ef þið eigið slíka) og steikið kjúklingabringurnar í um 4 mín. á hvorri hlið. Færið bringurnar yfir á disk og takið mesta vökvann af pönnunni, en skiljið eftir um teskeið á pönnunni.
  • Setjið pönnuna aftur á helluborðið og steikið hvítlaukinn í um 1 mínútu. Bætið balsamik ediki og púðursykri á pönnuna og hrærið saman. Látið sjóða og hrærið reglulega í þangað til sósan þykknar, en þetta tekur bara nokkrar mínútur.
  • Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna og veltið upp úr balsamikblöndunni. Ef pannan má ekki fara í ofn þarf að færa bringurnar í eldfast mót á þessum tímapunkti.
  • Raðið helmingnum af tómötunum í kringum kjúklinginn og bakið í ofni í 30 mínútur viði 210°C, eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  • Takið kjúklinginn út og raðið niðurskornum mozzarellasneiðum ofan á hann og setjið aftur inn í ofn í um 5 mínútur, eða þar til osturinn hefur bráðnað.
  • Takið kjúklinginn úr ofninum og stráið restinni af tómötunum og ferskri basilíku yfir réttinn.
  • Ef þið viljið meiri balsamik gljáa en er á pönnunni/eldfasta mótinu er hægt að búa til auka skammt úr 1/3 bolla af balsamik ediki og 2 msk. af púðursykri, en gljáann er upplagt að útbúa á meðan kjúklingurinn er í ofninum.