Menu
Kjúklingaborgari með osti og kóríander majó

Kjúklingaborgari með osti og kóríander majó

Hér er hamborgari, um hamborgara, frá hamborgara, til ... mín. Þessi er algjört lostæti og uppskriftin dugar fyrir fjóra.

Innihald

4 skammtar
úrbeinuð kjúklingalæri
límónur
ferskur kóríander
majones
sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
græn papríka
rauðlaukur
Óðals Hávarður
hamborgarabrauð, t.d. brioche
sjávarsalt, nýmalaður svartur pipar og ólífuolía

Skref1

  • Byrjið á að marinera kjúklinginn. Setjið kjúklingalærin í skál og rífið börkinn af einni límónu yfir og kreistið safann einnig yfir.
  • Takið kóríander og skerið neðri helminginn af stilkunum mjög smátt og setjið í skálina. Geymið dálítið af kóríander laufblöðum fyrir sósuna.
  • Setjið 2 msk. af ólífuolíu yfir ásamt vel af salti og nýmöluðum pipar og leyfið þessu að standa á meðan þið undirbúið restina af réttinum.
  • Hrærið saman majónes, sýrðum rjóma, berki af límónu, safa úr hálfri límónu, smátt söxuðum kóríander. Smakkið til með salti og pipar og setjið til hliðar.

Skref2

  • Hitið pönnu á háum hita. Skerið rauðlauk og papriku í þunnar sneiðar og steikið uppúr dálítilli olíu, kryddið með salti og pipar. Takið af hitanum þegar kominn er fallegur litur á grænmetið.
  • Grillið kjúklingalærin þar til elduð í gegn, setjið þá tvær vænar sneiðar af Óðals Hávarði (áður Havarti) á hvert læri, piprið og lokið grillinu þar til osturinn bráðnar og hitið brauðin á meðan.
  • Setjið kjúklinginn á brauðin, tvö læri á hvern borgara. Toppið kjúklinginn með steiktu grænmeti og kóríander majonesi. Berið fram með ofnbökuðum kartöflubátum.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir