Menu
Kastala afmæliskaka

Kastala afmæliskaka

Sniðug útfærsla á afmælisköku fyrir afmælisprinsa og -prinsessur.

Innihald

1 skammtar
púðursykur
sykur
egg
hveiti
kakó
lyftiduft
súrmjólk
smjör brætt

Smjörkrem - þetta er einföld uppskrift af smjörkremi

smjör við stofuhita
flórsykur (500 g)
vanilludropar (eða það bragð sem þú vilt)
mjólk (2-4 msk)

Skref1

  • Hitið ofninn í 180°c og smyrjið tvö hringlaga eldföst mót að innan ca 22. cm. að stærð.
  • Hrærið sykurinn og eggin vel saman þangað til blandan verður orðin ljós og létt.
  • Blandið öllum þurrefnunum saman í skál og hrærið vel saman
  • Bætið þurrefnunum saman við blönduna ásamt mjólkinni og brædda smjörinu smá og smá í einu og hrærið vel á milli. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman eða í rúmar 2 mín.
  • Setjið 2-3 msk. af deigi í bollakökuform eða fyllið 2/3 af forminu og skiptið svo restina af deiginu á milli kökuformanna og bakið í ca. 20-25 mín, eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
  • Kælið kökurnar alveg. Það er mjög mikilvægt að kökurnar séu vel kaldar þegar kremið er sett á þær svo það haldist vel og bráðni ekki á kökunum.

Skref2

  • Í þessa uppskrift þarf tvöfalda uppskrift af smjörkremi (þetta er einföld uppskrift af smjörkremi)
  • Matarlitur: Bleikur og fjólublár, mikilvægt er að nota gel matarliti. Skraut: 5 stk. ísform og mntukúlur, bleikar og hvítar. Sprautustútur: Lítill stjörnustútur.
  • Hægt er að gera þessa köku í öllum þeim litum sem ykkur dettur í hug og t.d. er hægt að breyta henni í riddarakastala með öðruvísi skrauti.
  • Hrærið smjörið í hrærivélinni þangað til það er orðið mjúkt og létt. Bætið smá og smá af flórsykrinum saman við og hrærið vel á milli.
  • Bætið því næst vanilludropunum saman við og mjólkinni. Ef ykkur finnst kremið of þykkt bætið þið við mjólk og ef ykkur finnst það of þunnt bætið þá við flórsykri. Mikilvægt er að hræra kremið mjög vel þegar maður ætlar að skreyta kökur því þá losnum við við alla smjörkekkina og kremið verður með fallega áferð. Því lengur sem þið hrærið því betra verður kremið.

Skref3

  • Gott er að skipta smjörkreminu til helminga eða gera eina uppskrift í einu. Það fer rúmlega ein uppskrift af smjörkremi á kökuna sjálfa og ein í skrautið. Leggið botnana á diskinn þannig að botninn standi upp, þannig fáum við kökuna til þess að vera fallega í laginu og efsta lagið verður slétt sem gerir kökuna svo fína. Setjið smjörkrem á milli botnanna og setjið svo þunnt lag af kremi yfir kökuna alla, það er gert til þess að festa hana saman og er kallað “crumb coat”. Best er svo að setja kökuna inn í ísskáp í rúmar 30 mín. Smyrjið svo annarri umferð af smjörkreminu yfir kökuna þangað til kremið hefur hulið kökuna vel. Gott er að slétta úr kreminu með hníf eða litlum spaða.
  • Takið bollakökuna úr bréfinu og setjið ofan á kökuna miðja. Smyrjið kremi yfir bollakökuna.
  • Setjið eitt stykki ísform ofan á bollakökuna og skreytið svo bollakökuna með fjólubláu. Notið lítinn stjörnustút og gerið stjörnur, það er gert þannig að þú kreistir sprautupokann örlítið og kippið svo frá. Skreytið einni meðfram kökunni neðst.
  • Setjið hin fjögur ísformin á kökuna í kringum miðjuna. Skreytið með smjörkremi í kringum hvert form og á toppinn á hverju. Skreytið hlið kökunnar og skreytið svo með mintukúlum, bleikum og hvítum. Geymið inn í ísskap þangað til smjörkremið hefur náð að storkna örlítið.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir