Menu
Karamellu poppbolla

Karamellu poppbolla

Bakarinn Elenora Rós Georgesdóttir deilir nú nokkrum ólíkum og ótrúlega spennandi bolluuppskriftum með lesendum Gott í matinn en Elenora hefur sett sitt mark á rjómahátíðina miklu síðustu ár og kynnt nýjar bollur fyrir landsmönnum á sérstökum Pop-Up markaði í aðdraganda bolludagsins.  

Ein uppskrift dugar í 15-20 bollur.

Innihald

1 skammtar

Vatnsdeigsbollur

mjólk
vatn
smjör
sykur
sterkt hveiti/brauðhveiti
egg, 2-3 stk.
salt

Súkkulaðikaramella

sykur
rjómi frá Gott í matinn
salt
smjör
súkkulaði

Macarpone ostakökurjómi

mascarpone frá Gott í matinn

Mascarpone ostakökurjómi

flórsykur
rjómi frá Gott í matinn
dass af vanillu

Annað

karamellupopp

Skref1

  • Byrjið á að útbúa vatnsdeigsbollurnar.
  • Hitið mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.
  • Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.
  • Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið þar til deigið er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.
  • Hrærið saman eggin og saltið til að brjóta upp eggin og blanda þeim vel saman við saltið.
  • Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn þá formi. Þegar það lekur af sleifinni í einskonar V formi þá er það tilbúið.

Skref2

  • Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.
  • Stillið ofninn á 220°C.
  • Þegar ofninn er tilbúin eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190°C í 15 mínútur.
  • Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170°C og bollurnar bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan.

Skref3

  • Búið næst til karamelluna en þá byrjið þið á að brúna sykur í potti. Leyfið honum að bráðna alveg en passið að hann fari ekki að brenna.
  • Bætið rjómanum saman við í mjórri bunu og passið að hræra vel á meðan.
  • Þegar karamellan hefur þykknað er smjörinu, saltinu og súkkulaðinu bætt saman við og brætt þar til allt er komið vel saman.

Skref4

  • Þeytið þar næst rjómann.
  • Byrjið á að þeyta saman mascarpone, flórsykur og rjóma. Þeytið þar til blandan er orðin létt í sér og búin að slétta úr sér.
  • Bætið rjómanun saman við í mjórri bunu og þeytið þar til þið eruð komin með léttþeyttan rjóma sem heldur sér vel. Varist að ofþeyta því þá gæti rjóminn farið að skilja sig.
  • Skerið nú bollurnar til helminga, setjið karamellu í botninn og á toppinn.
  • Fyllið bolluna með rjóma og lokið.
  • Setjið karamllupopp ofan á lokið á bollunni og njótið!

Höfundur: Elenora Rós Georgesdóttir