Hér höfum við krúttlegar kanilsnúða páskakanínur með litríku smjörkremi sem eru ekkert minna en stórkostlegar! Einföld uppskrift í skemmtilegri útfærslu fyrir krakka á öllum aldri. Snúðarnir sjálfir eru klassískir kanilsnúðar en aðferðin er aðeins öðruvísi þegar þeim er rúllað upp. Þeir eru svo skreyttir með litríku smjörkremi og kökuskrauti og koma ótrúlega skemmtilega út á páskaborðinu. Ég mæli alveg með því að leyfa krökkunum að skreyta kanínurnar sjálf þó ég hafi nú ekki gert það akkúrat hérna.