Menu
Jólakaka með Oreo og vanillu smjörkremi

Jólakaka með Oreo og vanillu smjörkremi

Súkkulaðikaka í jólabúningi með Oreo og silkimjúku vanillu smjörkremi.

Innihald

12 skammtar
botnar af þinni uppáhalds súkkulaðiköku

Oreo krem

smjör við stofuhita
rjómi frá Gott í matinn
vanilludropar
flórsykur
oreo kökur muldar vel niður, gott er að nota matvinnsluvél

Vanillusmjörkrem

smjör við stofuhita
flórsykur
rjómi frá Gott í matinn
vanilludropar

Aðferð

  • Skerið tvo skúkkulaðibotna í tvennt svo úr verði 4 botnar.
  • Útbúið Oreo smjörkrem og setjið á milli botnana.
  • Útbúið vanillu smjörkrem og skreytið kökuna.

Smjörkrem

  • Þegar þið hrærið saman krem er best að hræra smjörið fyrst og bæta svo smátt og smátt saman við flórsykrinum og hræra vel á milli svo allt fari ekki út um allt. Síðan er rjómanum blandað saman við og svo vanilludropum. Ef deigið er of þykkt bætið þá bara aðeins meiri rjóma saman við. Svo er hægt að skreyta með skrautsykri í öllum litum.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir