Menu
Jólaís með piparkökum og pekanhnetum

Jólaís með piparkökum og pekanhnetum

Hér er á ferðinni hinn fullkomni jólaís með piparkökum, rjómaosti, pekanhnetum og karamellu. 

Uppskriftin gerir um 2 l ís og undirbúningurinn tekur aðeins 20 mínútur.

Innihald

6 skammtar

Botn:

Piparkökur
Smjör

Jólaís:

Eggjarauður
Sykur
Púðursykur
Hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
Vanilludropar
Rjómi frá Gott í matinn
Dökkt súkkulaði
Pekanhnetur
Karamellusósa

Toppur:

Rjómi frá Gott í matinn
Piparkökur
Pekanhnetur
Karamellusósa

Piparkökuís

  • Hakkið piparkökur gróflega í matvinnsluvél, bræðið smjör og hrærið saman við piparkökurnar þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Setjið smjörpappír í hringlaga smelluform, um 20-24 cm að stærð og þrýstið piparkökunum í botninn og upp á hliðar formsins. Gott er að nota botninn af glasi til þess að þrýsta þeim vel niður og upp á kantana. Setjið formið í frysti á meðan þið undirbúið ísinn.
  • Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
  • Setjið púðursykur saman við og hrærið með sleif þar til hann hefur blandast vel saman við.
  • Hrærið rjómaostinn þar til hann verður mjúkur og sléttur. Bætið við vanilludropum og blandið rjómaostinum saman við með sleif.
  • Þeytið rjóma þar til hann er alveg að verða stífur og blandið honum saman við með sleif. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Saxið niður súkkulaði og pekanhnetur og blandið saman við.
  • Hellið ísblöndunni yfir piparkökubotninn.
  • Hellið Karamellunni saman við ísinn. Takið hníf og snúið honum í hringi þar til karamellan hefur náð að blandast saman við ísinn. Passið ykkur þó á því að setja hnífinn ekki í botninn á ísnum.
  • Frystið í að lágmarki 5 klst.

Toppur

  • Þeytið rjóma og setjið hann í rjómasprautupoka með þeim stút sem þið kjósið (ég notaði hringlaga stút).
  • Einnig er hægt að klippa gat á endann á pokanum og sprauta þannig ofan á ísinn.
Toppur

Skreyting

  • Skreytið ísinn að vild með rjómanum.
  • Saxið niður pekanhnetur og dreifið yfir rjómann.
  • Skreytið t.d. piparkökur og setjið ofan á rjómann ásamt karamellusósu.
  • Karamellusósan má vera íssósa keypt út úr búð, önnur karamellusósa eða heimagerð.
Skreyting

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir