Það er eitthvað svo sumarlegt við jarðarber og hindber! Hér er uppskrift að dásamlega góðu jarðarberjapæi sem auðvitað er einfalt að baka. Það er upplagt að bjóða upp á þeyttum rjóma, vanillusósu eða vanilluís með bökunni.
Skerið jarðarberin í bita og setjið þau í skál með hindberjunum.
Veltið þeim upp úr sykri, sítrónuberki, kartöflumjöli (eða maizenamjöli) og vanillu.
Setjið berin í kæli og látið standa þar á meðan þið búið til bökubotninn.
Botn
Skerið smjörið í bita og setjið það ásamt hveiti, lyftidufti og sykri í matvinnsluvél.
Notið hnífinn og hrærið í deig.
Bætið vatni saman við og blandið áfram þar til kominn er góður deigklumpur.
Setjið deigið í kæli og látið hvíla þar í um 20 mínútur.
Finnið til bökuform.
Notið kökukefli og fletjið út um 3/4 (notum afganginn í skraut) af deiginu frekar þunnt og þekið bökuformi með því. Mér finnst gott að nota bökunarpappír neðst í forminu. Látið deigið ná vel upp á kantana og skerið það snyrtilega í kring.
Það þarf að forbaka bökubotninn í rúmlega 10 mínútur og það er gert með því að tylla bökunarpappír í botninn á forminu og svo eru sett t.d. hrísgrjón (ósoðin) eða kjúklingabaunir (ósoðnar) ofan á pappírinn.
Bakið botninn þannig í rúmlega 10 mínútur. Þá er pappírinn fjarlægður (ásamt grjónum) og bökubotninn bakaður áfram í um 10 mínútur án grjóna.
Takið hann svo úr ofninum.
Samsetning
Sækið fyllinguna úr kælinum. Látið renna örlítið af henni. Þegar fyllingin er sett í bökubotninn og bakan bökuð myndast vökvi frá berjunum. Ef bakan fær að standa nokkra klukkutíma mun fyllingin stirðna aðeins. Hellið fyllingunni yfir deigið og dustið yfir með kartöflumjöli.
Það sem eftir er af deiginu er ætlað til að skera í lengjur og raða fallega yfir fyllinguna. Hægt er að flétta lengjurnar saman á ýmsan máta. Að lokum er deigið penslað með eggi og sykrinum stráð yfir.
Bakið jarðarberjabökuna í um 20 mínutúr eða þar til það hefur fengið á sig fallegan gylltan lit.