Menu
Jarðarberja ab skálar með ávöxtum og múslí

Jarðarberja ab skálar með ávöxtum og múslí

Hér fær ab mjólkin að njóta sín vel sem grunnur í dásamlega skál sem toppuð er með berjum, ávöxtum og múslí. Dýrðlegur morgunverður eða léttur kvöldmatur.

Innihald

4 skammtar
ab mjólk með jarðarberjum
• múslí
• banani
• jarðarber
• bláber
• brómber
• hindber
• chiafræ
• hampfræ

Aðferð

  • Setjið múslí að eigin vali í botninn á skál. Hellið AB mjólk með jarðarberjum yfir
  • Skreytið skálina að vild með ferskum berjum, bananasneiðum, fræjum og múslí.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir