Menu
Jarðarber og Oreo

Jarðarber og Oreo

Einfaldur og góður eftirréttur.

Innihald

6 skammtar
Oreo kex (15 stk)
rjómi frá Gott í matinn
Ísey skyr jarðarber
jarðarber

Toppur

rjómi frá Gott í matinn
Oreo kex

Skref1

  • Setjið Oreo kexið í matvinnsluvél og hakkið gróflega.
  • Setjið 2 msk af Oreo kexi í hvert glas fyrir sig.

Skref2

  • Þeytið ¼ lítra rjóma og hrærið saman við jarðaberjaskyrið

Skref3

  • Grófsaxið jarðarberin og blandið þeim varlega saman við.

Skref4

  • Setjið skyrið í sprautupoka og sprautið því jafnt í glösin.

Skref5

  • Þeytið restina af rjómanum eða ¼ lítra og sprautið honum ofan í hvert glas og skreytið með hálfri Oreo kexköku.
  • Geymið í kæli þar til borið er fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir