Menu
Hvítlauks naan pizzur með mangókjúkling og jógúrtsósu

Hvítlauks naan pizzur með mangókjúkling og jógúrtsósu

Þessi réttur er bæði ljúffengur, fljótlegur og ákaflega vinsæll á mínu heimili. Það er vel hægt að fara lengri leiðina og baka naan brauðin frá grunni en mér finnst mjög þægilegt að kaupa þau tilbúin og oft kaupi ég líka tilbúinn kjúkling til að flýta ennþá meira fyrir. En útkoman er alltaf stórkostleg. Það má bæði grilla pizzurnar eða baka í ofni og algjört lykilatriði að toppa þær með jógúrtsósu og þunnt sneiddum rauðlauk. Namm!

Innihald

4 skammtar
stór naanbrauð, 4-5 stk.
smjör
hvítlauksrif
fersk steinselja
eldaður kjúklingur
mango chutney
ferskt spínat
rifinn Mozzarella frá Gott í matinn
rauðlaukur
salt og pipar
fersk steinselja eða kóríander

Jógúrtsósa

grísk jógúrt frá Gott í matinn
mangó chutney
ólífuolía
sítrónusafi
hvítlauksrif, fínt saxað
fersk steinselja, söxuð (1-2 msk.)
salt, pipar og krydd að eigin vali

Skref1

  • Byrjið á að gera jógúrtsósuna.
  • Hrærið öll innihaldsefni saman og smakkið til með salti og pipar.
  • Ef ykkur finnst sósan of þykk er gott að þynna hana með dálitlu vatni

Skref2

  • Gerið næst hvítlaukssmjör.
  • Bræðið smjörið í potti ásamt hvítlauk og steinselju.
  • Penslið naanbrauðin með hvítlaukssmjörinu og bakið eða grillið þar til gullinbrún.

Skref3

  • Smyrjið vel af mangóchutney ofan á brauðin, saxið spínatið og skiptið því jafnt á milli brauðanna ásamt söxuðum kjúklingi.
  • Dreifið vel af osti yfir og bakið eða grillið þar til osturinn bráðnar.
  • Skerið rauðlaukinn í mjög þunnar sneiðar.
  • Þegar pizzurnar eru tilbúnar eru þær toppaðar með jógúrtsósu, rauðlauk og ferskri steinselju eða kóríander.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir