Menu
Hunangsristaðar rósmarín kartöflur

Hunangsristaðar rósmarín kartöflur

Virkilega góðar kartöflur sem sóma sér vel með steikinni.

Innihald

4 skammtar
Kartöflur
Ferskt saxað rósmarín
Smjör
Ólífuolía
Hunang
Sjávarsalt og nýmalaður pipar

Skref1

  • Skerið kartöflurnar í teninga.

Skref2

  • Bræðið smjörið á pönnu ásamt olíunni og steikið kartöfluteningana upp úr smjörinu þar til gylltir.
  • Bætið rósmarín á pönnuna og steikið aðeins áfram.
  • Setjið lok á pönnuna og leyfið kartöflunum að eldast undir lokinu.

Skref3

  • Þegar teningarnir eru næstum mjúkir í gegn, takið þá lokið af pönnunni, hækkið hitann og bætið hunanginu saman við.
  • Steikið í 1-2 mínútur.
  • Smakkið til með salt og pipar og berið fram.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir