Menu
Hunangsgljáðar gulrætur með burrata

Hunangsgljáðar gulrætur með burrata

Hér höfum við bragðgott meðlæti sem gleður bæði augu og bragðlauka en íslenskar gulrætur og burrata ostur smellpassa saman.

Innihald

1 skammtar
marglitar gulrætur
ólífuolía
hunang
íslenskur burrata ostur
granateplafræ
steinselja, söxuð
pistasíu, saxaðar
salt og pipar

Aðferð

  • Veltið gulrótum upp úr olíu og hunangi, saltið og piprið.
  • Bakið við 200°C í um 15 mín, snúið og bakið aftur í 15 mín.
  • Raðið á fallegan disk og toppið með burrataklípum, steinselju, granateplafræjum og söxuðum pistasíum.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir