Menu
Hin eina sanna peruterta

Hin eina sanna peruterta

Peruterta er uppáhalds terta margra og erum við fjölskyldan þar engin undantekning. Þessi hnallþóra er gerð fyrir öll afmæli og slær alltaf jafn mikið í gegn og yfirleitt sú terta sem klárast fyrst. Þessi útgáfa er klassísk en mér finnst gaman að bæta við hana marengsbotni og þeyttum rjóma. Það er þó ekki nauðsynlegt og stendur gamla góða útgáfan alltaf fyrir sér. Ég viðurkenni einnig fúslega að ég stytti mér oft leið og kaupi tilbúna svampbotna sem eru ekkert síðri. En hér fylgir uppskrift að einföldum svampbotnum.

Innihald

1 skammtar

Svampbotnar

egg
sykur
hveiti
lyftiduft

Súkkulaðirjómi

suðusúkkulaði
eggjarauður
flórsykur
rjómi frá Gott í matinn

niðursoðnar perur (420 g)

Svampbotnar

  • Hitið ofninn í 175 gráður með blæstri.
  • Þeytið egg og sykur mjög vel saman þar til blandan er ljós og létt.
  • Sigtið saman hveiti og lyftidufti og hrærið varlega saman við með sleikju.
  • Setjið í tvö smurð og bökunarpappírsklædd kökuform og bakið þar til botnarnir eru gullnir að lit eða í u.þ.b. 12-15 mínútur.
  • Kælið á grind.

Súkkulaðirjómi

  • Bræðið súkkulaðið við vægan hita eða yfir vatnsbaði.
  • Stífþeytið rjómann og setjið til hliðar.
  • Stífþeytið saman eggjarauður og flórsykur þar til blandan er ljós.
  • Blandið bræddu súkkulaðinu saman við eggjablönduna..
  • Hrærið að lokum rjómanum varlega saman við.

Samsetning

  • Sigtið vökvann frá perunum og geymið. Leggið annan svampbotninn á disk og vætið vel í honum með helmingnum af perusafanum.
  • Skerið helminginn af perunum í litla bita og hinn helminginn í sneiðar til að skreyta tertuna með.
  • Setjið u.þ.b. 1/3 af súkkulaðirjómanum á botninn og dreifið perubitum yfir.
  • Bleytið seinni svampbotninn með perusafa og leggið svo ofan á.
  • Setjið restina af súkkulaðirjómanum ofan á tertuna, dreifið vel úr niður á hliðarnar og skreytið með perusneiðum svo úr verður dásamleg rjómaterta.
  • Ath. Ef þið viljið uppfæra tertuna er ákaflega gott að setja marengs á milli svambotnanna. Þá legg ég tilbúinn marengsbotn ofan á súkkulaðirjómann með perubitunum (eftir lið 3). Set svo 3 dl af þeyttum rjóma ofan á marengsinn og seinni svampbotninn ofan á það. Toppa svo með kremi.
Samsetning

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir