Menu
Heimagert vanillukrem

Heimagert vanillukrem

Uppskrift að heimagerðu vanillukremi sem hentar vel með kökum, ferskum berjum og ávöxtum.

Innihald

1 skammtar
eggjarauður
sykur
maizenamjöl
rjómi frá Gott í matinn
mjólk
vanillustöng, 1-2 stk.

Skref1

  • Setjið eggjarauður í skál og þeytið vel saman með sykri og maizenamjöli.

Skref2

  • Hellið rjóma og mjólk í pott og látið suðuna koma upp.
  • Skrapið vanillustöngina og setjið vanillukornin út í mjólkina.

Skref3

  • Takið pottinn af hitanum og þeytið eggjablönduna saman við rjómablandið.
  • Setjið pottinn aftur á hitann, lækkið hitann og hrærið stöðugt í á meðan vanillukremið byrjar að þykkna.
  • Þetta tekur nokkrar mínútur, mögulega 5-10.

Skref4

  • Kremið er tilbúið þegar það er orðið verulega þykkt og helst nokkurn veginn á skeiðinni þegar þú setur krem í hana.
  • Látið kremið kólna aðeins áður en það er borið fram með kökunni.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal