Menu
Heimagerður ís með lakkrískurli

Heimagerður ís með lakkrískurli

Virkilega góð og einföld ísterta sem sniðugt er að búa til með góðum fyrirvara til að minnka stress og álag síðustu daga fyrir jól. Uppskriftin gerir um það bil 2 lítra.

Innihald

12 skammtar

Ís:

egg
sykur
rjómi frá Gott í matinn
Kea skyr með vanillu
vanilludropar
dökkt súkkulaði
piparfyllt lakkrískurl með súkkulaðihjúp

Lakkríssósa:

poki Bingókúlur
dökkt súkkulaði
rjómi frá Gott í matinn
síróp
sjávarsalt

Skref1

  • Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.

Skref2

  • Þeytið rjóma þar til hann stendur og blandið skyrinu saman við rjómann.
  • Blandið rjómaskyrblöndunni saman við og hrærið varlega með sleif ásamt vanilludropum.

Skref3

  • Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið saman við.
  • Það er ekki nauðsynlegt að setja eggjahvíturnar saman við ísinn og um að gera að nýta þær í t.d marengstoppa eða annað.

Skref4

Skref5

  • Grófsaxið niður súkkulaði og blandið saman við ásamt piparfyllta lakkrískurlinu.
  • Setjið ísinn í hringlaga smelluform eða það form sem þið viljið nota.

Skref6

  • Því næst undirbúið þið lakkríssósuna sem fer á ísinn.
  • Setjið allt saman í pott yfir meðalháum hita og hrærið þar til allt hefur náð að bráðna og blandast vel saman.
  • Hellið lakkríssósunni yfir ísinn og blandið henni saman við með því að snúa hníf í hringi í gegnum ísinn þar til sósan hefur náð að blandast saman við.
  • Frystið í að lágmarki 5 klukkustundir.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir