Menu
Heimagerðir hamborgarar með karamelluðum lauk og Höfðingja

Heimagerðir hamborgarar með karamelluðum lauk og Höfðingja

Æðislega góðir borgarar sem vert er að prófa. Dala Höfðingi og Óðals cheddar ostur fara einstaklega vel með karamelluðum lauk, smjörsteiktum sveppum og heimagerði hamborgarasósu sem lætur þig fá vatn í munninn. Uppskriftin gerir 4-6 hamborgara eftir því hversu stóra þú vilt hafa þá

Innihald

4 skammtar

Hamborgarar

nautahakk
Óðals Cheddar, rifinn
sweet barbecue sósa eða venjuleg barbecue sósa
egg
cayanne pipar
salt og pipar
Dala Höfðingi
Óðals Cheddar, magn eftir smekk

Lúxus sósa

mayonnaise
tómatsósa
honey dijon sinnep
smátt saxaðar súrar gúrkur, eða eftir smekk
salt og pipar

Laukur og sveppir

laukur
olía
púðursykur
sveppir
smjör
salt og pipar

Meðlæti

hamborgarabrauð
kál
franskar, ofnbakaðar eða djúpsteiktar

Hamborgarar

  • Hrærið saman nautahakki, rifnum cheddar, barbecue sósu, eggi, cayanne pipar, salti og pipar.
  • Skiptið kjötinu jafnt í 4-6 borgara eftir því hversu stórir þeir eiga að vera.
  • Pressið kjötið með hamborgarapressu eða í höndunum.
  • Hamborgarana er hægt að elda á ýmsa vegu en þessir voru steiktir á pönnu.
  • Skerið Dala Höfðingja í sneiðar og sneiðið Cheddar ostinn ef hann er ekki í sneiðum.
  • Þegar borgararnir eru nánast tilbúnir þá bæti þið Cheddar og Höfðingja ofan á.

Lúxus sósa

  • Hrærið öllum innihaldsefnum saman.
  • Þessi sósa er líka frábær með frönskunum.

Laukur og sveppir

  • Laukurinn er skorinn ílangt og látinn malla í olíu með smá salti á miðlungs hita þar til hann verður gylltur.
  • Þá er púðursykrinum bætt út á pönnuna þangað til hann byrjar að klístrast.
  • Sveppirnir eru skornir og steiktir upp úr smjöri og salti og pipar.
  • Þegar laukurinn og sveppirnir eru tilbúnir þá getið þið blandað því saman, eða haft í sitthvoru lagi.

Samsetning

  • Þá er allt tilbúið og þá er bara eftir að raða á hamborgarann.
  • Brauð, sósa, kál, hamborgari, laukur, sveppir og meiri sósa.
  • Berið fram með frönskum kartöflum og njótið!

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir