Menu
Heilgrillaður ostakubbur með grænmeti

Heilgrillaður ostakubbur með grænmeti

Þessi réttur getur líka staðið einn og sér sem aðalréttur en þá er gott að bera hann fram með fersku salati eða brauði.

Innihald

1 skammtar
paprikur, t.d. gular og rauðar (3-4 stk.)
stórir tómatar (3-4 stk)
ostakubbur frá Gott í matinn (áður fetakubbur)
ólífuolía
ferskt timían
bbq sósa að eigin vali
salt og pipar
ferskur graslaukur

Skref1

  • Takið fetakubbinn úr umbúðunum og þerrið vel með pappír.
  • Leggið á disk og hellið ólífuolíu yfir, um það bil 2 msk.
  • Penslið ostinn vel með olíunni báðum megin.
  • Stráið jafnt yfir ostinn söxuðu fersku timíani og kryddið með pipar.

Skref2

  • Skerið paprikuna í stóra bita og tómatana í tvennt.
  • Setjið í skál, hellið 1-2 msk. af ólífuolíu yfir ásamt bbq sósu, kryddið með 1 msk. af fersku timíani, salti og pipar og veltið öllu saman.

Skref3

  • Grillið grænmetið og ostinn á vel heitu grilli í um það bil 8-10 mínútur.
  • Passið að fylgjast vel með grænmetinu og snúa því reglulega.
  • Snúið ostinum með stórum og góðum spaða eftir 3-4 mínútur og grillið áfram í aðrar 3-4 mínútur.
  • Osturinn á að vera mjúkur en enn dálítið stinnur í miðjunni.

Skref4

  • Raðið grænmetinu á disk og skerið ostinn í bita og dreifið yfir.
  • Dreifið að lokum ferskum graslauk yfir allt saman ásamt dálítilli ólífuolíu.
  • Berið fram strax.
Skref 4

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir