Menu
Guðdómlegt spínatsalat

Guðdómlegt spínatsalat

Salatið er mjög gott daginn eftir og jafnvel betra! Hentar vel með niðurskornu baquette brauði, alls konar kexi og hrökkbrauði.

Innihald

6 skammtar
water chestnuts
rauðlaukur
frosið spínat
púrrulaukssúpa
sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
majónes
smá salt

Skref1

  • Byrjið á því að afþíða spínatið.

Skref2

  • Skerið water chestnuts smátt niður ásamt rauðlaukinum og blandið saman í skál.
  • Sigtið púrrulaukssúpuna ofan í þannig að grófu laukbitarnir fari ekki með ofan í salatið og blandið vel saman.

Skref3

  • Klippið spínatið niður eins smátt og þið getið og blandið saman við, setjið síðan sýrða rjómann saman við ásamt majónesinu og blandið vel saman ásamt smá salti.
  • Ef ykkur finnst salatið ekki nógu blautt þá setjið þið bara aðeins meiri af sýrðum rjóma saman við.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir