Menu
Grísk jógúrtkaka með eplum og karamellu

Grísk jógúrtkaka með eplum og karamellu

Einstaklega ljúffeng og notalega haustleg kaka með eplum, karamellu og kanil. Skyrtertur hafa fyrir löngu unnið sér fastan sess á okkar heimili, en í þessari útgáfu gefur silkimjúk grísk jógúrt kökunni einstakan bragðblæ ásamt rjómaosti og rjóma. Dásamleg eplakaramellusósan fullkomnar síðan kökuna og lyftir henni upp á allt annað stig.

Innihald

1 skammtar
Mmm... grísk jógúrt með karamellueplum
hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
flórsykur
vanilluextrakt
rjómi frá Gott í matinn
biscoff kex
smjör

Eplakaramellusósa

græn epli
púðursykur
kanill
sítrónusafi
vatn
maíssterkja + 1 dl vatn

Skref1

  • Mylið kexið fínt, bræðið smjörið og blandið vel saman.
  • Þjappið kexmulningnum í botninn á formi eða skál og kælið.

Skref2

  • Hrærið rjómaost, flórsykur og vanillu saman.
  • Bætið grískri jógúrt út í og blandið vel saman með písk.
  • Þeytið rjómann og blandið loks öllu varlega saman.
  • Setjið blönduna yfir kexbotninn og kælið í ísskáp í 6 klst eða frysti í 2-3 klst.

Skref3

  • Gerið eplakaramellusósuna: Flysjið og skerið eplin í litla bita, setjið í pott ásamt púðursykri, kanil, sítrónusafa og 1 dl vatni. Hleypið suðunni upp og leyfið að malla á vægum hita þar til eplin mýkjast í gegn.
  • Hrærið saman maíssterkju og köldu vatni og hellið út í pottinn, leyfið að sjóða aðeins þar til blandan þykknar.
  • Kælið alveg áður en þið hellið sósunni yfir kökuna eða berið fram með kökunni.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir