Menu
Gratínerað pasta í chilli tómatsósu

Gratínerað pasta í chilli tómatsósu

Einstaklega fljótlegur og ljúffengur pastaréttur sem öll fjölskyldan hefur fallið fyrir. Þetta er ekta þægindamatur, það vita allir að stundum er stórt fat af pasta og osti það eina sem þarf. 

Innihald

1 skammtar
ostafyllt pasta, t.d. tortellini eða ravioli
ólífuolía
laukur
hvítlauksrif, 2-3 stk.
rauður chillipipar
niðursoðnir tómatar (eða 3-4 vel þroskaðir ferskir tómatar, smátt saxaðir)
vatn
tómatsósa
sjávarsalt og svartur pipar
ferskar mozzarellakúlur, stórar
parmesanostur, rifinn

Skref1

  • Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum á pakkanum.
  • Athugið ef þið notið ferskt pasta er best að sjóða það frekar þegar sósan er tilbúin.

Skref2

  • Saxið lauk, hvítlauk og chillipipar smátt. Ég nota fræin og allt úr chillipiparnum en ef þið viljið ekki sterka sósu má fræhreinsa hann áður.
  • Steikið þetta allt saman í ólífuolíunni við meðalhita í 3-4 mínútur eða þar til laukurinn er mjúkur í gegn, gætið þess að hafa ekki of háan hita á pönnunni.

Skref3

  • Hellið tómötunum saman við, ásamt vatni og tómatsósu.
  • Kryddið vel með salti og pipar og látið malla/sjóða í 10-15 mínútur.
  • Smakkið til með kryddi.

Skref4

  • Hellið elduðu pastanu saman við sósuna og hrærið vel saman.
  • Toppið með moszarella osti og parmesan.
  • Setjið undir vel heitt grill í ofni í 5 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir