Menu
Gratínerað gnocchi með hakki og ostasósu

Gratínerað gnocchi með hakki og ostasósu

Hér er kominn réttur sem ég get næstum lofað að börn munu borða upp til agna og fullorðnir líklega líka. Notalegheitamatur eins og hann gerist bestur. Það má auðvitað nota hvaða pasta sem er en litlir ferskir dúnmjúkir gnocchi koddar taka þetta samt upp á annað stig.

Innihald

4 skammtar
nautahakk
laukur
hvítlauksrif
tómatpaste
hakkaðir tómatar
vatn
nautateningur eða 1 tsk. nautakraftur
oreganó
salt og pipar
ferskt gnocchi

Ostasósa

kotasæla
rjómaostur með graslauk og lauk frá MS
4 osta blanda frá Gott í matinn
smá pipar

Skref1

  • Hitið ofn í 220°C með blæstri.
  • Steikið hakkið á pönnu þar til brúnað. Bætið smátt söxuðum lauk á pönnuna ásamt hvítlauk. Kryddið með salti og pipar og steikið aðeins áfram.

Skref2

  • Bætið tómatpaste á pönnuna ásamt hökkuðum tómötum. Skolið dósina að innan með 1 dl af vatni og bætið á pönnuna.
  • Kryddið með nautakrafti, oregano og saltið og piprið eftir smekk.
  • Leyfið að malla í 15 mínútur við vægan/meðalhita þannig að sósan þykkni aðeins.

Skref3

  • Hrærið saman kotasælu, rjómaosti og hálfum poka af 4 osta blöndu. Kryddið með smá pipar og setjið til hliðar.
  • Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka og bætið því svo út á pönnuna og blandið saman við hakksósuna.
  • Setjið vænar skeiðar af ostasósunni svo ofan á hakkið og pastað og toppið loks með restinni af rifna ostinum.
  • Bakið í ofni í 5-10 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Það getur verið gott að hita grillið í ofninum síðustu mínúturnar til að fá extra stökkan ost.
Skref 3

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir