Menu
Gómsætir íspinnar með grískri jógúrt

Gómsætir íspinnar með grískri jógúrt

Hér ráðast hlutföll eftir smekk hvers og eins og upplagt að prófa sig áfram.

Innihald

1 skammtar
Grísk jógúrt frá Gott í matinn
Jarðarber, hindber, bláber og/eða fleiri ávextir eftir smekk
Smá hunang og súkkulaði

Skref1

  • Blandið saman grískri jógúrt, jarðarberjum, hindberjum og bláberjum.

Skref2

  • Gott er að setja smá hunang út í blönduna og súkkulaðibita ef maður vill.

Skref3

  • Eins má setja hvaða ávexti sem er í blönduna og breyta og bæta uppskriftina að vild.

Skref4

  • Hrært saman í blandara, hellt í íspinnaform og fryst.

Höfundur: Tinna Alavis