Virkilega gott og góður fjölskyldumatur. Þessi samsetning er eitthvað sem hægt er að mæla með, piparostur og beikon klikkar ekki en grænu baunirnar (athugið ekki niðursoðnar heldur frosnar) gera algjörlega útslagið í réttinum. Verði ykkur að góðu!
Berið strax fram með parmesanosti… og svona til að kóróna réttinn má hafa með honum gott brauð eða hvítlauksbrauð.
pasta að eigin vali, soðið al dente | |
pastasoð | |
piparostur | |
rjómi (2-3 dl) frá Gott í matinn | |
beikonsneiðar (10-12 sneiðar), eldaðar og skornar í bita | |
grænar baunir, frosnar úr poka, búið að þýða | |
rifinn parmesanostur |
Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir