Fallegt á borði og einfalt í matargerð. Gestir rífa sér einn og einn bita af heitu brauði með smjöri, kryddjurtum og mozzarella osti. Athugið að þetta brauð má gera daginn áður og geyma í kæli þar til því er stungið í ofn.
Skerið langsum og þversum skurði ofan í brauðið, fjöldi skurða fer eftir stærð brauðhleifs, en þannig að hver biti sé um 1 ½ til 2 cm.
Gætið að því að skera það ekki alveg niður svo það fari ekki í sundur!
Skref2
Takið undir brauðið og glennið það í sundur; með því er auðvelt að smyrja brauðið með mjúku smjöri, strá steinselju ofan í það, dreifa mozzarella ostinum, strá rifnum Goðdal Feyki yfir og ofan í ásamt smá salti. Stingið rósmaríngreinum hér og þar.
Skref3
Stingið í ofn og bakið þar til brauðið er vel heitt og osturinn vel bráðinn.