Menu
Fylltar sætar kartöflur

Fylltar sætar kartöflur

Þessar fylltu katröflur eru guðdómlega góðar. Chili, sýrður rjómi og kóríander er eitthvað sem getur ekki klikkað og gerir réttinn einstaklega ferskan og góðan. Ég hef gert nokkrar útgáfur af fylltum kartöflum og þessar slá hinum við að mínu mati.

Meðlæti er óþarfi þar sem kartaflan er góð ein og sér.

Innihald

4 skammtar
sætar kartöflur (velja þær sem eru langar og ekki of breiðar)
kjúklingabringur (eða tilbúinn kjúklingur, hægt að kaupa kjúklingastrimla)
rauðlaukur
Dala Salatostur (áður Fetaostur)
avocado
sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
kóríander, magn eftir smekk
chilli, magn eftir smekk
salt og pipar
olía

Skref1

  • Ofninn hitaður í 200 gráður blástur.
  • Kartöflurnar eru skornar langsum, gaffall er notaður til að stinga lítil göt og hitaþolin olía borin á kartöfluna.
  • Kartöflurnar fara í ofninn á bökunarpappír í um klukkustund eða þar til þær eru mjúkar í gegn.

Skref2

  • Kjúklingurinn er steiktur ef þið hafið keypt hann óeldaðan.

Skref3

  • Á meðan kartöflurnar eru í ofninum er fínt að skera laukinn, og setja lauk, fetaost og smátt skorinn kjúkling saman í skál.

Skref4

  • Avocado er stappað, chilli skorið og kóríander rifinn niður.

Skref5

  • Þegar kartöflurnar eru tilbúnar er skafað innan úr þeim með skeið en passið að fara ekki of langt ofan í.

Skref6

  • Innihaldinu í kartöflunni er blandað saman við kjúklinginn, laukinn og fetaostinn og blandan sett aftur í kartöfluna, saltað og piprað eftir smekk.

Skref7

  • Á toppinn fer avocado, sýrður rjómi, chilli og kóríander.
Skref 7

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir