Menu
Fylltar bollur

Fylltar bollur

Dásamlega góðar gerbollur með fyllingu að eigin vali!

Innihald

24 skammtar
smjör, brætt
mjólk
þurrger
sykur
kardimommukrydd
salt
hveiti

Fylling:

Sulta, súkkulaði, sítrónusmjör (lemon curd), Nutella eða marsípan
Flórsykur til skrauts

Skref1

  • Setjið mjólkina saman við brætt smjörið. Passið að vökvinn sé ekki of heitur.
  • Blandið geri, sykri, salti og kardimommukryddi saman við. Hrærið.
  • Setjið hveitið saman við smátt og smátt. Þið þurfið kannski ekki allt magnið sem upp er gefið. Betra að deigið sé í blautari kantinum þegar það fer í hefingu.
  • Látið deigið hefast í skálinni undir plastfilmu í 45 mínútur.

Skref2

  • Hnoðið deigið niður og búið til langa pylsu. Skiptið henni niður í 24 jafna bita og mótið bollur.
  • Gerið djúpa holu með þumalfingri og setjið fyllinguna þar ofan í. Best er að magn fyllingar miðist við um 1 tsk.
  • Þegar fyllingin er komin í holuna er gott að klípa hliðarnar saman, móta bolluna til og setja síðan sárhliðina á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
  • Látið hefast í 20-30 mínútur. Penslið með pískuðu eggi.
  • Bakið í 7-8 mínútur við 250°.

Skref3

  • Látið bollurnar kólna aðeins og sáldrið svo flórsykri yfir.
Skref 3

Höfundur: Erna Sverrisdóttir