Menu
Flatbrauð með mozzarellaosti, tómötum, ólífum og basil

Flatbrauð með mozzarellaosti, tómötum, ólífum og basil

Þessi uppskrift dugar fyrir fjögur brauð.

Innihald

1 skammtar

Flatbrauð:

hveiti
sjávarsalt
lyftiduft
pilsner eða bjór

Álegg:

extra virgin ólífuolía
grænar ólífur, skornar í þunnar sneiðar
stórt hvítlauksrif, fínsaxað
kokteiltómatar, saxaðir
mozzarellaostur í litlum kúlum, eða 1 lítil dós
fersk basil, saxað og eftir smekk
sjávarsalt og svartur pipar, eftir smekk

Skref1

  • Blandið hveiti, salti og lyftidufti saman í skál.
  • Hellið pilsner saman við og hrærið.
  • Bætið hveiti við ef deigið er of klístrað. Hnoðið stutta stund.
  • Setjið aftur í skálina og hyljið með plastfilmu. Látið standa í 15 mínútur.
  • Skiptið þá deiginu í 4 parta og fletjið hvern út í hring sem er um 20 cm í þvermál.
  • Steikið báðum megin við háán hita á þurri pönnu.

Skref2

  • Hrærið varlega saman fyrstu 4 hráefnunum sem eiga að fara ofan á flatbrauðið.
  • Skiptið því jafnt niður á brauðin.
  • Dreifið síðan ostinum, rifnum eða heilum yfir ásamt fersku basil.
  • Sáldrið loks salti og pipar yfir.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir