Menu
Ferskt ávaxtasalat með þeyttum vanillurjóma

Ferskt ávaxtasalat með þeyttum vanillurjóma

Óóóó ef þetta ofurferska sumarsalat er ekki akkúrat það sem allir þurfa að fá æði fyrir í sumar þá veit ég ekki hvað. Þetta var algjörlega guðdómlegt með þeyttum vanillurjóma, namm! Það má auðvitað skipta ávöxtum út fyrir hverja sem er en hunangs-límónudressingin tekur ávextina á æðra stig svo alls ekki sleppa henni! Sætur vanillurjómi með fersku ávaxtasalati er klárlega nýja uppáhaldið mitt!

Innihald

1 skammtar

Ávaxtasalat

jarðarber
bláber
kiwi
appelsína
vínber (eða um 30 stk.)
hindber
dökkt súkkulaði, saxað

Hunangsdressing

hunang
lime, safi og börkur

Vanillurjómi

rjómi frá Gott í matinn
sykur
fræ úr einni vanillustöng

Ávaxtasalat

  • Skerið ávextina niður í litla bita (allt nema bláberin).
  • Veltið upp úr hunangsdressingunni (sjá uppskrift hér að neðan) og berið fram með söxuðu súkkulaði og þeyttum vanillurjóma (sjá uppskrift hér að neðan).
  • Best er að bera ávextina fram samstundis á meðan þeir eru stökkir og ljúffengir.

Hunangsdressing

  • Pískið saman með gaffli og hellið yfir ávextina þegar búið er að skera þá niður og veltið varlega um með sleikju.

Vanillurjómi

  • Setjið allt saman í hrærivélarskálina og þeytið þar til rjóminn verður stífþeyttur.
  • Berið fram með fersku ávaxtasalatinu.
Vanillurjómi

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir