Menu
Eplapæ bolla Elenoru

Eplapæ bolla Elenoru

Bakarinn Elenora Rós Georgesdóttir deilir nú nokkrum ólíkum og ótrúlega spennandi bolluuppskriftum með lesendum Gott í matinn en Elenora hefur sett sitt mark á rjómahátíðina miklu síðustu ár og kynnt nýjar bollur fyrir landsmönnum á sérstökum Pop-Up markaði í aðdraganda bolludagsins.  

Ein uppskrift dugar í 15-20 bollur.

Innihald

1 skammtar

Vatnsdeigsbollur

mjólk
vatn
smjör
sykur
sterkt hveiti/brauðhveiti
egg, 2-3 stk.
salt

Bökuð epli

epli, skrælt og skorið smátt
smjör
púðursykur
kanill

Annað

pistasíusmjör
sítrónucurd
rjómi frá Gott í matinn

Skref1

  • Byrjið á að útbúa vatnsdeigsbollurnar.
  • Hitið mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.
  • Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.
  • Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið þar til deigið er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.
  • Hrærið saman eggin og saltið til að brjóta upp eggin og blanda þeim vel saman við saltið.
  • Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn þá formi. Þegar það lekur af sleifinni í einskonar V formi þá er það tilbúið.

Skref2

  • Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.
  • Stillið ofninn á 220°C.
  • Þegar ofninn er tilbúin eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190°C í 15 mínútur.
  • Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170°C og bollurnar bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan.

Skref3

  • Byrjið nú að gera epla fyllinguna.
  • Setjið smjör og sykur saman í pott og leyfið því að bráðna vel saman. Setjið eplin og kanilinn út í og sjóðið saman þar til karamellan hefur þykknað og eplin eru vel brúnuð.
  • Þeytið nú rjóma og hafið tilbúinn.
  • Skerið bollurnar til helminga og setjið sítrónu curd og pistasíusmjör á botninn.
  • Setjið þar næst rjómann á bollurnar og að lokum bökuðu eplin.
  • Lokið bollunni og njótið!

Höfundur: Elenora Rós Georgesdóttir