Á hverju hausti, þegar eplin fara að safnast upp í eldhúsinu hjá mér, er þessi epla-crumble ostakaka eitt af því fyrsta sem ég baka. Hún hefur allt sem mér finnst best við haustbakstur. Silkimjúka ostakökufyllingu, hlý og kanililmandi epli, gullinbrúnt hafrakurl og nóg af karamellusósu.
Hún er svo notaleg og heimilisleg og einhvern veginn klárast hún alltaf allt of fljótt. Hvort sem ég er að baka hana fyrir hátíðlegt tilefni eða langar einfaldlega í smá hauststemningu, þá er þetta ein af þessum uppskriftum sem ég kem alltaf aftur að, ár eftir ár.
Ekki láta langan innihaldslista fæla þig frá, ég lofa að kakan er þess virði!