Menu
Dúnmjúkir ostasnúðar með hvítlaukssmjöri

Dúnmjúkir ostasnúðar með hvítlaukssmjöri

Þessir dásamlegu ostasnúðar urðu til þegar mig langaði að gera eitthvað aðeins öðruvísi úr heimabökuðu deigi. Ég notaði hvítlaukssmjör, rjómaost með tómötum og basilíku, rifinn mozzarella og Sveita kúmenost og útkoman varð ótrúlega mjúk, ostakennd og bragðmikil. 

Mér finnst best við þessa uppskrift hvað það er auðvelt að leika sér með fyllinguna og bæta við því sem manni finnst gott. Þessir snúðar eru fullkomnir nýbakaðir og heitir, en líka mjög góðir daginn eftir.

Innihald

1 skammtar

Snúðadeig

hveiti
þurrger
volg mjólk
egg
brætt smjör
sykur
salt

Ofnbakaður hvítlaukur

hvítlaukur
• ólífuolía
mjúkt smjör
timían

Fylling

rjómaostur með tómötum og basilíku
• rifinn mozzarellaostur, magn eftir smekk
• Sveita kúmenostur, skorinn í litla teninga, magn eftir smekk

Til að pensla snúðana

egg
mjólk

Skref1

  • Skerið toppinn af hvítlauknum og setjið smá ólífuolíu yfir.
  • Vefjið honum inn í álpappír og bakið við 180°C í 40–60 mínútur.
  • Þegar hvítlaukurinn er orðinn mjúkur og gylltur, kreistið hann úr hýðinu.
  • Blandið saman við 2 msk. af mjúku smjöri og ½ tsk. af timíani.
  • Stappið allt saman þar til blandan verður kremkennd.

Skref2

  • Blandið saman volgri mjólk, geri og sykri. Látið standa í 5–10 mínútur.
  • Bætið eggi, smjöri og salti saman við. Bætið hveitinu smám saman út í.
  • Hnoðið deigið í um 8–10 mínútur, þar til það er mjúkt og teygjanlegt.
  • Hyljið deigið og látið það hefast í 1–1½ klukkustund, eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.
  • Þegar deigið hefur hefast, fletjið það út með kökukefli í ferhyrning.

Skref3

  • Smyrjið hvítlaukssmjöri yfir allt deigið og dreifið því jafnt.
  • Smyrjið um 4 matskeiðum af rjómaosti með tómat og basilíku yfir deigið.
  • Dreifið um 150 g af mozzarella jafnt yfir.
  • Bætið Sveita Kúmenosti, skornum í litla teninga, yfir deigið.
  • Skerið deigið í jafnstórar lengjur með pizzahníf.

Skref4

  • Smyrjið botninn á bökunarforminu vel með hvítlaukssmjöri áður en snúðarnir eru settir í formið.
  • Setjið snúðana í formið og skiljið eftir smá bil á milli þeirra svo þeir hafi pláss til að hefast.
  • Hyljið snúðana og látið þá hefast aftur í um 30–45 mínútur, þar til þeir hafa stækkað aðeins og eru orðnar léttir og loftkenndir.

Skref5

  • Hitið ofninn í 180 °C.
  • Þeytið saman 1 egg og 2 matskeiðar af mjólk í lítilli skál. Penslið blöndunni yfir snúðana.
  • Bakið í um 18–22 mínútur, eða þar til snúðarnir eru fallega gylltir og osturinn bráðinn og freyðandi.
  • Takið snúðana úr ofninum og látið þá kólna í nokkrar mínútur áður en þeir eru bornir fram.

Höfundur: Ana Rebelo Pinto