Menu
Draumterta

Draumterta

Klassísk og dásamleg hnallþóra eins og þær gerast bestar. Þessi er bökuð við hátíðleg tilefni á mínu heimili, helst alltaf á jólum og páskum. Draumterta eða Dísudraumur eins og sumir kalla hana er að mínu mati drottning hinnar íslensku hátíðartertu. Það er snjallt að baka svampbotninn og marengsinn deginum fyrir samsetningu og tertan er svo langbest daginn eftir samsetningu.

Innihald

1 skammtar

Svampbotn

egg
sykur
hveiti
kartöflumjöl
vanilludropar

Marengs

eggjahvítur
púðursykur

Súkkulaðikrem

rjómi frá Gott í matinn
suðusúkkulaði
eggjarauður
flórsykur

Á mili:

rjómi frá Gott í matinn

Svampbotn

  • Hitið ofn í 190°C á blástur.
  • Þeytið saman egg, sykur og vanilludropa þar til ljóst og loftkennt.
  • Bætið hveiti og kartöflumjöli út í og blandið rólega saman við með sleikju.
  • Smyrjið kökuform og setjið bökunarpappír í botninn. Hellið deiginu í formið og jafnið út.
  • Bakið í 15 mínútur eða þar til bökuð í gegn. Látið kökuna kólna aðeins og losið úr forminu og látið kólna alveg á grind.

Marengs

  • Hitið ofninn í 130 gráður með blæstri.
  • Setjið eggjahvítur og sykur í skál og þeytið vel saman þar til stíft eða í um 10 mínútur.
  • Setjið bökunarpappír í botninn á kökuformi jafnstóru og þið bökuðuð svampbotninn í. Dreifið marengsinum í formið og bakið í miðjum ofni í klst.
  • Slökkvið á ofninum og opnið litla rifu og látið kólna alveg í ofninum.

Súkkulaðikrem

Samsetning

  • Þeytið 4 dl af rjóma.
  • Setjið svampbotninn á tertudisk og smyrjið helmingnum af rjómanum ofan á . Smyrjið síðan helmingnum af súkkulaðikreminu yfir rjómann.
  • Setjið marengsinn ofan á og endurtakið síðan, rjóma og endið á súkkulaðikremi.
  • Geymið í ísskáp yfir nótt og berið svo fram.
Samsetning

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir