Menu
Dásamleg kaffikaka með kaffiglassúr

Dásamleg kaffikaka með kaffiglassúr

Dásamlega mjúk og bragðgóð kaffikaka með Ísey vanilluskyri og ljúffengum kaffiglassúr. Njótið vel.

Innihald

1 skammtar
smjör, brætt
nýmjólk
skyndikaffi
sykur
púðursykur
egg
vanilludropar
Ísey skyr vanilla
hveiti
matarsódi
lyftiduft
salt

Kaffiglassúr

flórsykur
nýmjólk
skyndikaffi
vanilludropar

Skref1

  • Hitið ofninn í 170°C og smyrjið kökuform með smjöri.
  • Bræðið smjörið og látið það standa til hliðar.
  • Hitið mjólkina og hrærið kaffinu saman við þar til það leysist upp. Setjið til hliðar.

Skref2

  • Þeytið saman sykur, púðursykur, egg og vanilludropa þar til blandan verður létt og ljós.
  • Bætið bræddu smjörinu, kaffimjólkinni og Ísey vanilluskyrinu saman við og hrærið vel.

Skref3

  • Blandið þurrefnunum varlega saman við og hrærið þar til allt hefur rétt svo blandast saman.
  • Bakið í um 40 mínútur.
  • Látið kökuna kólna alveg áður en glassúrinn er settur yfir.

Skref4

  • Svo er það glassúrinn góði.
  • Hitið mjólkina og hrærið kaffinu saman við.
  • Hrærið flórsykri og vanilludropum saman við þar til glassúrinn verður silkimjúkur. Ef glassúrinn er of þunnur má bæta við smá flórsykri.
  • Hellið yfir kökuna þegar hún hefur kólnað alveg.
Skref 4

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir