Menu
Crème Brûlée bolla

Crème Brûlée bolla

Bakarinn Elenora Rós Georgesdóttir deilir nú nokkrum ólíkum og ótrúlega spennandi bolluuppskriftum með lesendum Gott í matinn en Elenora hefur sett sitt mark á rjómahátíðina miklu síðustu ár og kynnt nýjar bollur fyrir landsmönnum á sérstökum Pop-Up markaði í aðdraganda bolludagsins.  

Ein uppskrift dugar í 15-20 bollur.

Innihald

1 skammtar

Vatnsdeigsbollur

mjólk
vatn
smjör
sykur
sterkt hveiti/brauðhveiti
egg, 2-3 stk.
salt

Vanillukrem

mjólk
rjómi frá Gott í matinn
dass af vanillu
eggjarauður
sykur
maizena

Annað

flórsykur
vatn
sykur fyrir toppinn
rjómi frá Gott í matinn

Skref1

  • Byrjið á að búa til vanillukremið þar sem það þarf að kólna vel áður en það fer í bolluna. Sjóðið mjólk og rjóma í stórum potti upp að suðu og hafið aðra skál með vanillu, eggjarauðum, sykri og maizena tilbúna, hrærið því öllu vel saman.
  • Þegar mjólkin er komin upp að suðu hellið þið smá af henni út í blönduna í skálinni og hrærið saman. Setjið allt í skálinni síðan aftur í pottinn og hrærið núna stanslaust þar til kremið fer að sjóða og hefur þykknað.
  • Leggið til hliðar og leyfið að kólna.

Skref2

  • Búið næst til vatnsdeigsbollurnar.
  • Hitið mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.
  • Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.
  • Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið þar til deigið er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.
  • Hrærið saman eggin og saltið til að brjóta upp eggin og blanda þeim vel saman við saltið.
  • Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn þá formi. Þegar það lekur af sleifinni í einskonar V formi þá er það tilbúið.

Skref3

  • Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.
  • Stillið ofninn á 220°C.
  • Þegar ofninn er tilbúin eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190°C í 15 mínútur.
  • Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170°C og bollurnar bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan

Skref4

  • Skerið nú bollurnar til helminga og léttþeytið rjómann.
  • Fyllið botninn á bollunum með vanillukremi og sprautið svo rjómanum á bolluna.
  • Búið til glassúr úr flórsykri og vatni og dýfið toppnum á bollunni ofan í glassúrinn og svo ofan í sykurinn.
  • Setjið lokin á bollurnar og notið gasbrennara til að brenna sykurinn.

Höfundur: Elenora Rós Georgesdóttir