Menu
Bragðmikil pizza með risarækjum og sterkum ítölskum osti

Bragðmikil pizza með risarækjum og sterkum ítölskum osti

Þessi bragðmikla risarækjupizza er algjörlega fullkomin eftir góða vinnuviku. Hún er einföld en samt fáguð og hráefnin fá að njóta sín í botn.

Innihald

2 skammtar
pizzadeig, heimagert eða aðkeypt
plómutómatar
rifinn Pizzaostur frá Gott í matinn
sterk ítölsk ostablanda frá Gott í matinn, magn eftir smekk
risarækjur, hráar
ólífuolía
hvítlauksgeirar, marðir
safi úr hálfri sítrónu
þurrkuð steinselja
sjávarsalt og svartur pipar
chili duft á hnífsoddi, má sleppa
rifinn parmesan ostur eða Goðdala Feykir
fersk steinselja, má sleppa

Skref1

  • Útbúið pizzadeig sem myndi nægja í 2x 12“ pizzur. Einnig er hægt að kaupa afbragðsgott deig í flestum matvöruverslunum.
  • Opnið dósina með plómutómötunum og látið mesta safann renna af. Setjið tómatana í skál og kreistið með höndunum. Kryddið með sjávarsalti og setjið til hliðar.
  • Hitið ofninn í 260°C undir og yfirhita eða eins hátt og hann kemst.
  • Hitið 2 ofnplötur með í ofninum eða pizzastein ef þið eigið hann til.

Skref2

  • Hitið pönnu með góðri ólífuolíu.
  • Setjið risarækjurnar á pönnuna, setjið hvítlauk, sítrónusafa, steinselju, chili og salt og pipar út á og steikið bara rétt þannig að þær verði bleikar.
  • Setjið pönnuna til hliðar.
  • Fletjið út deigið með höndunum með því að teygja það til, reynið að forðast að nota kökukefli en með því að nota það lyftir deigið sér síður og kantarnir verða flatir. Stingið göt á botnana með gaffli en skiljið kantana eftir.
  • Setjið 2 arkir bökunarpappír á borðið og færið botnana yfir á pappírinn.

Skref3

  • Smyrjið tómötunum á pizzubotnana að köntunum.
  • Stráið pizzaostinum yfir, einn poki er nóg í 2 botna.
  • Setjið því næst sterka ítalska rifna ostinn yfir, magn eftir smekk en mér finnst auðvitað betra að setja meira en minna.
  • Raðið risarækjunum á pizzurnar.

Skref4

  • Ef þið eigið pizzaspaða setjið þá spaðann undir bökunarpappírinn og rennið pizzunum á plöturnar eða steininn í ofninum.
  • Breytið ofnstillingunni á blástur en það er óþarfi ef þið bakið eina pizzu í einu. Það er einnig hægt að sleppa því að hita plöturnar með ofninum og setja á pizzurnar á plöturnar en að mínu mati verða pizzurnar betri þannig.
  • Bakið pizzurnar í nokkrar mínútur eða þar til kantarnir og osturinn eru orðnir gylltir.
  • Stráið rifnum parmesan eða Goðdala Feyki og ferskri steinselju yfir tilbúnar pizzurnar.
Skref 4

Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal