Menu
Bollur með kaffirjóma og súkkulaðiglassúr

Bollur með kaffirjóma og súkkulaðiglassúr

Skothelld uppskrift að vatnsdeigsbollum með kaffirjóma og súkkulaðiglassúr. 

Innihald

20 skammtar

Vatnsdeigsbollur:

vatn
smjör
sykur
salt
hveiti
egg

Rjómafylling:

rjómi frá Gott í matinn
KEA skyr kaffi og vanillu
flórsykur
skyndikaffi, malað

Súkkulaðiglassúr:

flórsykur
dökkt kakó
sterkt kaffi
smjör, brætt
heitt vatn

Vatnsdeigsbollur

  • Setjið vatn í pott yfir meðal háum hita og látið suðu koma upp.
  • Setjið smjör, sykur og salt saman við og hrærið þar til smjörið hefur náð að bráðna saman við vatnið.
  • Setjið hveitið saman við og hrærið stanslaust þar til deigið er orðið þykkt og sleppir hliðum pottsins.
  • Slökkvið undir pottinum, bætið einu eggi saman við í einu og hrærið vel á milli.
  • Setjið deigið í sprautupoka með þeim stút sem þið viljið. T.d. 1M, rósastút eða klippið 1 cm gat fremst á sprautupoka.
  • Setjið smjörpappír á bökunarplötu og sprautið deiginu jafnt á plötuna. Hver bolla þarf ekki mikið deig þar sem þær lyfta sér vel í ofninum. Ýtið lauslega með með skeið ofan á hverja bollu fyrir sig svo það sé ekki toppur af deigi sem standi upp, þannig verða bollurnar fallegri í laginu.
  • Bakið bollurnar við 200 gráðu hita í 10 mínútur, lækkið þá ofninn niður í 170 gráður og bakið í 15 mínútur.
  • Látið bollurnar kólna áður en þið skerið þær í sundur og setjið á þær.

Rjómafylling

  • Þeytið rjómann þar til hann stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið.
  • Blandið skyrinu saman við ásamt kaffi og flórsykri og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Setjið rjómablönduna í sprautupoka og sprautið fallega á hverja bollu fyrir sig, eða setjið 2 msk. á hverja bollu.

Súkkulaðiglassúr

  • Setjið flórsykur í skál ásamt kakói og hrærið vel saman.
  • Bræðið smjör og hellið saman við ásamt kaffi og hrærið vel saman.
  • Bætið heitu vatni saman við þar til þið hafið náð þeirri þykkt á glassúrnum sem við viljið, því meira vatn sem þið setjið því þynnra verður glassúrinn.
  • Geymið bollurnar í kæli þar til þær eru bornar fram.
Súkkulaðiglassúr

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir