Menu
Bollur með creme brulée rjóma og karamellu

Bollur með creme brulée rjóma og karamellu

Einstaklega góðar vatnsdeigsbollur sem skemmtilegt er að gera.

Í þessari uppskrift er notuð tilbúin karamellusósa.

Innihald

14 skammtar

Vatnsdeigsbollur:

vatn
smjör
sykur
salt
hveiti
egg

Rjómafylling:

rjómi
Ísey skyr creme brulee
flórsykur
kanill
vanilludropar
kanilsykur

Toppur:

karamellusósa
flórsykur

Vatnsdeigsbollur

  • Setjið vatn í pott yfir meðal háum hita og látið suðu koma upp.
  • Setjið smjör, sykur og salt saman við og hrærið þar til smjörið hefur náð að bráðna saman við vatnið.
  • Setjið hveitið saman við og hrærið stanslaust þar til deigið er orðið þykkt og sleppir hliðum pottsins.
  • Slökkvið undir pottinum, bætið einu eggi saman við í einu og hrærið vel á milli.
  • Setjið deigið í sprautupoka með þeim stút sem þið viljið. T.d. 1M, rósastút eða klippið 1 cm gat fremst á sprautupoka.
  • Setjið smjörpappír á bökunarplötu og sprautið deiginu í litla jafna hringi. Hver hringur þarf ekki mikið deig þar sem deigið lyfta sér vel í ofninum.
  • Bakið við 200 gráðu hita í 10 mínútur, lækkið þá ofninn niður í 170 gráður og bakið í 15 mínútur.
  • Látið hringina kólna áður en þið skerið þá í sundur og setjið á þær.

Rjómafylling

  • Þeytið rjómann þar til hann stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið.
  • Blandið skyrinu saman við ásamt kanil, vanilludropum og flórsykri og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Setjið rjómablönduna í sprautupoka og sprautið fallega á hverja bollu fyrir sig, eða setjið 2 msk. á hverja bollu.
  • Stráið kanilsykri yfir rjómablönduna og lokið bollunni.
  • Stráið flórsykri yfir hverja bollu fyrir sig.
  • Setjið tilbúna karamellusósu ofan á hverja bollu fyrir sig.
  • Geymið bollurnar inni í ísskáp þar til þær eru bornar fram.
Rjómafylling

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir