Aðferð
- Hitið ofninn í 220°C grillstillingu.
- Skolið og þerrið bláberin og setjið í eldfast mót.
- Blandið ólífuolíu, ediki, hvítlauk, púðursykri, salti og pipar saman í skál og hellið yfir bláberin.
- Skerið brauðið í sneiðar, penslið með ólífuolíu og stráið smá grófu salti yfir.
- Setjið hvoru tveggja í ofninn á sama tíma. Takið brauðið út eftir 3–5 mínútur en bakið bláberin í 12–15 mínútur.
- Leyfið bláberjunum aðeins að standa eftir að þau koma úr ofninum og leggið síðan burrata ost ofan á, setjið smá lög úr botninum yfir ostinn ásamt basilíkunni.
- Njótið með ristaða brauðinu.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir