Menu
Blinis með piparrótarrjóma og reyktri bleikju

Blinis með piparrótarrjóma og reyktri bleikju

Svona réttir eru eitthvað það besta sem ég veit. Það er ekkert eðlilega elegant að baka sitt eigið blinis og líka einfaldara en margir halda. Þetta er frábær og klassískur forréttur eða smáréttur með köldum freyðandi drykk.

Innihald

1 skammtar

Blinis

hveiti
sykur
salt
lyftiduft
egg
mjólk
brætt smjör
• smá auka smjör til að steikja upp úr

PIparrótarrjómi

sýrður rjómi 36% frá Gott í matinn (1 dós)

Piparrótarrjómi

ferskur sítrónusafi
maukuð piparrót úr pakka (2-3 msk.)
hunang
• smá salt

Ofan á blinis

• piparrótarrjómi
• reykt bleikja
• kapers
• smátt saxaður graslaukur
• ferskt dill
• sítróna

Skref1

  • Byrjið á að útbúa blinis.
  • Pískið saman í skál öllum þurrefnum, bætið þá út í eggi, mjólk og bræddu smjöri og pískið vel saman.
  • Hitið pönnu og steikið blinis pönnukökurnar upp úr dálitlu smjöri þar til gullinbrúnar. Hver kaka er u.þ.b. 1 msk. af deigi.
  • Leggið pönnukökurnar á disk.

Skref2

  • Næst er það iparrótarrjóminn.
  • Pískið öllum innihaldsefnum saman og smakkið til með salti og piparrót.

Skref3

  • Setjið blinisið saman.
  • Setjið góða teskeið af piparrótarrjóma neðst og toppið með bleikjusneið, kapers, graslauk og dilli.
  • Gott að bera fram með sítrónubátum til hliðar til að kreista yfir.
Skref 3

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir