Menu
Bláberja tiramisu

Bláberja tiramisu

Þessi uppskrift dugar fyrir 6.

Innihald

1 skammtar

Tiramisu með bláberjum:

bláber
sykur
Limoncello líkjör eða annar líkjör, t.d. Cointreau, Grand Marnier eða berjasafi að eigin vali
sykur
Lady Finger kökur
eggjarauður
íslenskur Mascarpone frá Gott í matinn
saxaðar pistasíuhnetur, eftir smekk

Skref1

  • Setjið bláber í pott ásamt ¾ dl af sykri og 2 msk. af líkjör.
  • Látið malla þar til sykurinn er uppleystur. Passið að mauka ekki berin.
  • Kælið.

Skref2

  • Hrærið saman létt og ljóst eggjarauður og 2 msk. sykur.
  • Hrærið Mascarponeosti og 2 msk. af líkjör saman við.

Skref3

  • Bleytið Lady Finger kökurnar upp úr 2 msk. af líkjöri.
  • Brjótið helminginn niður og setjið í 6 glös.
  • Í staðinn fyrir að setja í glös mætti nota fat eða skál. Þá þyrfti kannski aðeins fleiri Lady Finger kökur.

Skref4

  • Setjið helminginn af bláberjunum ofan á Lady Finger kökurnar og þá helminginn af Mascarponehrærunni.
  • Endurtakið síðan einu sinni.
  • Toppið með söxuðum pistasíum.
  • Gott er að geyma réttinn í kæli í a.m.k. 2 tíma áður en hann er borinn fram. Það skemmir ekki að bjóða upp á þeyttan rjóma með þessu ljúffenga bláberja tiramisu.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir