Menu
Bláberja og skyrbolla með lakkrísdufti

Bláberja og skyrbolla með lakkrísdufti

Bakarinn Elenora Rós Georgesdóttir deilir nú nokkrum ólíkum og ótrúlega spennandi bolluuppskriftum með lesendum Gott í matinn en Elenora hefur sett sitt mark á rjómahátíðina miklu síðustu ár og kynnt nýjar bollur fyrir landsmönnum á sérstökum Pop-Up markaði í aðdraganda bolludagsins.  

Ein uppskrift dugar í 10 bollur.

Innihald

1 skammtar

Vatnsdeigsbollur

mjólk
vatn
smjör
sykur
sterkt hveiti/brauðhveiti
egg, 2-3 stk.
salt

Bláberja compote

frosin bláber
sykur
sítrónusafi

Skyr rjómi

rjómi frá Gott í matinn
Ísey skyr, hreint eða vanillu
flórsykur
vanilludropar eða vanillusykur
örlítið salt

Annað

sítrónu curd
lakkrísduft

Skref1

  • Byrjið á að útbúa bláberja compote þar sem það þarf að kólna vel.
  • Setjið innihaldsefnin saman í pott og hrærið vel í af og til þar til allt er komið saman og farið að sjóða.
  • Leggið til hliðar og útbúið vatnsdeigsbollurnar.

Skref2

  • Byrjið á að hita mjólkina, vatnið, smjörið og sykurinn upp að suðu.
  • Bætið hveitinu saman við og hrærið stanslaust þar til filma myndast á botninum á pottinum og deigkúla fer að myndast úr deiginu. Mikilvægt er að nota brauðhveiti svo bollurnar falli ekki og haldi formi. Deigið á að losna vel frá hliðum pottsins þegar það er tilbúið.
  • Færið deigið í hrærivélaskál og hrærið þar til deigið er orðið volgt og þið getið snert það án þess að finna hita.
  • Hrærið saman eggin og saltið til að brjóta upp eggin og blanda þeim vel saman við saltið.
  • Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel inn á milli. Hrærið þar til deigið er ekki lengur stíft en heldur þó enn formi. Þegar það lekur af sleifinni í einskonar V formi þá er það tilbúið.

Skref3

  • Sprautið deiginu á pappírsklædda plötu með góðu millibili.
  • Stillið ofninn á 220°C.
  • Þegar ofninn er tilbúinn eru bollurnar settar inn í ofninn og hitinn lækkaður í 190°C í 15 mínútur.
  • Eftir 15 mínútur er hitinn lækkaður í 170°C og bollurnar bakaðar áfram í 15-20 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar og búnar að mynda góða skorpu að utan.

Skref4

  • Þeytið nú rjómann. Setið kaldan rjóma í hrærivélaskál og þeytið þar til hann er rétt að byrja að þykkna (mjúkir toppar).
  • Hrærið skyrið saman við sykur og vanillu í sér skál þar til slétt.
  • Blandið skyrinu varlega saman við rjómann með sleikju eða á lágum hraða þar til það er orðið létt og loftkennt.
  • Skerið nú bollurnar til helminga.
  • Setjið bláberja compote og sítrónu curd í botninn.
  • Setjið þar næst skyr rjómann á bollurnar og lokið bollunum.
  • Sigtið lakkrísduft yfir bollurnar og njótið!

Höfundur: Elenora Rós Georgesdóttir