Menu
Banana og bláberjamöffins með grískri jógúrt

Banana og bláberjamöffins með grískri jógúrt

Æðislegar sykurlausar möffins. Hollari kostur fyrir börn sem fullorðna.

Innihald

12 skammtar
hveiti
stór og vel þroskaður banani
bláber
lyftiduft
grísk jógúrt frá Gott í matinn
egg
smjör, brætt og kælt
vanilludropar
kanill
hafrar á toppinn (val)

Skref1

  • Ofninn hitaður í 180 gráður blástur.
  • Hveiti og lyftidufti blandað saman í sér skál.

Skref2

  • Í aðra skál er egg pískað með gaffli.

Skref3

  • Ofan í skálina með egginu fer svo restin, grísk jógúrt, stappaður banani, bláber, smjör, kanill og vanilludropar.

Skref4

  • Öllu þessu er hrært vel saman og því næst hveitiblöndunni með sleif þar til deigið hefuð blandast vel saman.
  • Ég setti dökkan súkkulaðispænir í helminginn af deginu þar sem ég átti það til, kom mjög vel út ef þið viljið prófa það.

Skref5

  • Í möffinsform fer eins og ein væn matskeið af deigi og höfrum stráð yfir.
  • Kökurnar eru bakaðar í ofni í 30 mínútur.
Skref 5

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir