Menu
Bakað smælki með pestó og mozzarella perlum

Bakað smælki með pestó og mozzarella perlum

Kartöflur eru klassískt meðlæti með hvers kyns mat en ef þú hefur ekki prófað að bera þær fram með mozzarella perlum skorum við á þig að prófa!

Innihald

1 skammtar
kartöflusmælki
ólífuolía
salt
grænt pestó
mozzarella perlur
furuhnetur, ristaðar
fersk basilíka

Aðferð

  • Veltið kartöflunum upp úr ólífuolíu og salti, bakið við 200°C í um 30 mínútur eða þar til þær mýkjast.
  • Takið úr ofninum, veltið upp úr pestó, blandið mozzarella perlum saman við og setjið á fallegan disk.
  • Toppið með ristuðum furuhnetum og basilíkulaufum.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir