Menu
Aligot kartöflumús með Óðals Tindi

Aligot kartöflumús með Óðals Tindi

Frönsk kartöflumús sem minnir á teygjanlegt krem sem hægt er að draga fram og til baka.

Innihald

6 skammtar
Kartöflur
Smjör
Rjómi frá Gott í matinn
Óðals Tindur
Múskat
Salt og pipar

Skref1

  • Flysjið kartöflurnar.

Skref2

  • Sjóðið í söltu vatni og hellið svo vatninu frá.

Skref3

  • Skerið smjörið í bita og stappið saman við heitar kartöflurnar.

Skref4

  • Raspið ostinn og hrærið saman við.
Skref 4

Skref5

  • Bætið við rjóma, salti og pipar og 1/3 af múskathnetu sem þið raspið saman við.
Skref 5

Skref6

  • Hrærið og teygið eins og þið getið og leggið á disk.

Höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson