Menu
Ofnbakaður brauðréttur með súrdeigsbrauði, spergilkáli og beikoni

Ofnbakaður brauðréttur með súrdeigsbrauði, spergilkáli og beikoni

Dásamlegur heitur brauðréttur sem upplagt sem fljótlegt er að útbúa.

Innihald

4 skammtar
beikonsneiðar, gróft saxaðar
rauðlaukur, skorinn í þunna strimla
spergilkál í litum bitum
egg
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
þurrkað óreganó
sjávarsalt
svartur pipar
súrdeigsbrauð, skorið í munnbita
granítostur frá Gott í matinn

Aðferð

  • Steikið beikonið þar til stökkt. Takið af pönnunni og leggið á eldhúsblað.
  • Notið fituna sem eftir er á pönnunni til að mýkja laukinn. Látið hann malla á lágum hita undir loki í 15 mínútur. Takið lokið af og látið laukinn eldast áfram í 5 mínútur.
  • Sjóðið spergilkálið í léttsöltu vatni í 3 mínútur. Látið vatnið renna af því.
  • Pískið saman í stórri skál eggjum og matreiðslurjóma.
  • Blandið síðan hinum hráefnum saman við.
  • Smyrjið eldfast mót með smjöri og hellið brauðblöndunni í mótið.
  • Setjið álpappír yfir og geymið í allt að sólarhring eða bakið strax með álpappírnum við 180° í 20 mínútur, takið þá álpappírinn af og bakið áfram í 20-30 mínútur.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir