Menu
Taco með hakki og sumarsalsa

Taco með hakki og sumarsalsa

Tacos með hakki er eitthvað sem slær í gegn á flestum heimilum. Þessi réttur er ofur einfaldur, hollur og góður. Best er að útbúa sumarsalsa fyrst og geyma í kæli á meðan annað er undirbúið.

Uppskrift fyrir 4-5.

Innihald

4 skammtar
nautahakk
tacokrydd
harðar tostadas/taco skeljar (12-15 stk.)
rifinn cheddarostur frá Gott í matinn
sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
sumarsalsa (sjá uppskrift hér að neðan)
kóríander
ólífuolía

Sumarsalsa

lítil mangó (þroskuð)
lítil avocado (í poka)
nokkur jarðarber
rauðlaukur
lime (safinn)
kóríander (saxað)
salt og pipar

Sumarsalsa

  • Skerið mangó, avókadó og jarðarber í litla bita.
  • Saxið rauðlaukinn smátt.
  • Blandið öllu saman í skál og kreistið lime yfir.
  • Smakkið til með salti og pipar.

Aðferð

  • Hitið ofninn í 180°C.
  • Steikið hakkið upp úr ólífuolíu og kryddið með taco kryddi.
  • Hitið skeljarnar og raðið saman á skeljarnar: cheddar ostur, hakk, sumarsalsa, sýrður rjómi og kóríander.
Aðferð

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir