Menu
Lasanja með bolognese og bechamel sósu

Lasanja með bolognese og bechamel sósu

Hér er ferðinni dýrindisréttur sem gaman er að elda og bera fram fyrir þá sem skipta mann máli. Þetta er sáraeinföld matreiðsla en það sem skiptir máli er að gefa henni tíma. 

Innihald

6 skammtar

Bolognese sósa, innihald:

flankasteik eða annað nautakjöt sem hentar til hægeldunar
ólífuolía, 2-3 msk.
vatn
sellerístönglar, smátt skornir
laukar, smátt skornir
gulrætur, smátt skornar
beikon, smátt skorið
svínahakk
niðursoðnir tómatar
tómatpaste
salt og chilliduft
hnefafylli fersk basilíka, gróft skorin
lasanjaplötur, ferskar eða þurrkaðar
stór mozzarella kúla, rifin

Bechamel sósa, innihald:

smjör
hveiti
mjólk, 4-5 dl
salt og pipar
múskat
parmesanostur, fínt rifinn

Bolognese sósa

  • Hitið ofn í 120 gráður. Byrjið á því að setja flankasteikina í ofnpott, saltið hana örlítið. Dreypið ólífuolíu yfir og vatni, svo þeki botninn á pottinum.
  • Hafið í ofninum í þrjá til fjóra tíma eða þar til auðvelt er að rífa kjötið niður og það er lungamjúkt. Rífið kjötið niður að eldunartíma loknum.
  • Notið stóran pott undir sósuna.
  • Mýkið grænmeti upp í góðri ólífuolíu. Setjið þá hakk saman við ásamt beikoni og hrærið vel. Hellið tómötum yfir ásamt tómatpaste. Saltið aðeins og piprið.
  • Blandið öllu vel saman. Hafið pottinn á lágum hita og látið suðuna koma upp undir sósunni. Lækkið þá hitann og hafið hann mjög lágan en þannig að sósan malli.
  • Því lengri tíma sem sósan fær, því betri verður hún.
  • Nú skal blanda rifna nautakjötinu saman við kjötsósuna ásamt basilíkunni og leyfa öllu að malla saman í um hálftíma.

Bechamel sósa

  • Bræðið smjör í potti.
  • Hrærið hveiti saman og úr verður smjörbolla.
  • Hellið smá mjólk út í og hrærið mjög vel þar til smjörbollan tekur að leysast upp.
  • Hellið meiri mjólk og hrærið, haldið áfram í þessu ferli þar til smjörbollan er orðin að kekkjalausum jafningi.
  • Athugið að magn á mjólk sem þarf í sósuna getur verið mjög mismunandi.
  • Hrærið parmesanost saman við og látið hann bráðna vel.
  • Kryddið með múskati og smakkið til með salti og pipar.

Lasanja samsetning

  • Hitið ofn í 180 gráður.
  • Finnið til gott ofnfast mót fyrir lasanja.
  • Setjið þunnt lag af kjötsósu í botninn á mótinu og lasanjaplötur yfir.
  • Þá fer vænt lag af kjötsósu yfir plöturnar, lag af bechamel-sósunni og aftur lasanjaplötur.
  • Endurtakið ferlið eins oft og mótið leyfir. Það er mjög flott af ná nokkrum hæðum. Ljúkið lögunum á plötum og sósu yfir þær.
  • Rífið niður mozzarellakúluna og stráið yfir sósuna.
  • Stingið í ofn í 40 mínútur.
  • Takið þá úr ofninum og látið standa í dágóða stund áður en borið fram svo betra sé að skera réttinn og hann sé fallegri á diski.
  • Of heitt lasanja bragðast heldur ekki eins vel og það sem hefur fengið að standa sinn stöðutíma.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir